Frítt fyrir Almenning. Stórnotendur borga!

Ef rétt hefði verið haldið á málum værum við Reykvíkingar og fleiri ekki rukkaðir um krónu miðað við eðlilega notkun á rafmagni og heitu vatni. Stórsölusamningar hefðu tryggt þá hagkvæmi að láta landsmenn njóta frábærra samninga við erlend stórfyrirtæki.

Actavis myndi sömuleiðis sem þjóðhollt íslenskt fyrirtæki leggja allt undir til að hafa lægsta lyfjaverð sitt á Íslandi og leggja sitt af mörkum til hagsbóta fyrir almenning.


mbl.is Tveggja stafa hækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Orkuveitan skuldar 240 milljarða króna. Langstærstur hluti þeirra skulda er til kominn vegna fjárfestinga fyrirtækisins í virkjunum og veitum, sem ákvarðanir voru teknar um á síðasta kjörtímabili R-listans 2002-2006.

 

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst í meirihluta árið 2006 hafði fráfarandi meirihluti R-listans mótað stefnu um gífurlegar virkjanaframkvæmdir á Hellisheiði, gert bindandi orkusölusamninga og hafið byggingu Hellisheiðarvirkjunar. Ekki var annað að gera en klára virkjunina og standa við skuldbindingarnar. Stærstur hluti lánanna var því tekinn á síðasta kjörtímabili en ákvarðanir voru að mestu leyti teknar á valdatíma R-listans og undir borgarstjórum Samfylkingarinnar.

 

Á árunum 2001-06 áttu sér stað mikil uppkaup OR á veitum og dreifikerfi á Suðurlandi og Vesturlandi. Lítil arðsemi hefur verið af þessum veitum og sumar beinlínis reknar með tapi.

 

Bág staða OR skrifast því á R-listann - (Samfylkinguna ) sem hvergi segist hafa komið að málum.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 23.8.2010 kl. 20:46

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Innilega sammála Kolbeinn.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.8.2010 kl. 02:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband