Ellistyrkurinn hefur alltaf forgang, Sama hvað þjófarnir segja!!!

Málið er einfalt Ellistyrkurinn ca 227.000,- núna og þarf að hækka snarlega um 45% samkv kjararáði, Ellistyrkurinn er í dag heilög byrjunartala í útreikningi ellilauna 65 - 70 ára.


Þggar sauðsvartur almenningurinn er orðinn 67 (65 -70) ára, eftir þrotlaust strit, eiga allir algjöran og óskoraðan rétt á að fá Ellistyrkinn útborgaðan, sama á hverju gengur!!
Engar skerðingar frá þeirri byrjun eru í boði, Annað er hreinn þjófnaður!!

EN Þjófarnir fundu nýtt hugtak "Skerðingar" Steingrímur J hóf þjófnaðinn en var það hræddur við afleiðingarnar að hann þorði ekki að stela neðar en 109.000,- Katrín og Bjarni eru mun grófari og ætla blygðunarlaust að stela að 100,000,-


Lægra er ekki hægt að komast en þetta fólk, köllum það "From under the Stone"
og ekki að ósekju er Bjarni margoft nefndur "Guðfaðirinn að stofnun Flokks Fólksins" Ef hann hefði haft einurð til að standa við kosningapésann, sem dreift var í hús 2013 hefði aldrei komið til þess að Flokkur Fólksins kæmi til umræðu, hvað þá að stofna flokkinn!


Hvaða fólki finnst í lagi að þjófstela Ellistyrknum.

Hvað fær þetta fólk greitt um hver mánaðarmót? frá skattgreiðendum? Ekki getur lífeyrissjóur þessa fólks borgað. Hefur ekki tapað minna en sjóðir sauðsvarts almenningsins.

 

Tökum prestinn Halldór í Holti, sem gott dæmi. tilvitnun frá honum  meira en 2ja ára gömul!!!

Ég fæ 600.000,- úr prestasjóðnum = 375.000,- eftir skatta og skerðingar. 45% hækkunin kom seinna!! hvað fær hann nú? gaman að vita!

Stóra spurningin er??

Hvað getur sjóðsræfillinn borgað prestinum án þess að Ríkið þjófsteli af almenningi meirihlutanum!!

presturinn var aldrei skertur um lífeyri í hvert sinn sem snillingarnir sem töldu sig umkomna til að ávaxta þvingaðan og svokallaðann lífeyrisparnað sauðsvarts almenningsins.
Almenningur var þjófstolinn til að borga 4%+ 6% í lífeyrissjóð!!!

Á meðan trúgjarn almenningurinn er læstur milli 200,000,- - 280.000,- með því að þjófstela þeirri upphæð sem þarf til lágmarks framfærslu.

Ellistyrkurinn á alltaf að dekka lágmarksframfærslu!!!!!!

 Lífeyrissjóðsgreiðslur og aðrar tekjur koma til viðbótar!!!

 

Samkvæmt blaði sem borið var í hús fyrir kosningar 2013, og sá flokkur sem að því stóð sveik, er ekki hægt að segja annað en að formaður þess flokks, er sannefndur "Guðfaðir flokks Fólksins"

Ef sá ágæti formaður hefði framkvæmt, í stað þess að svíkja það sem stóð á blaðinu, sem sett var í bréfalúgur almennings, þá hefði aldrei skapast þörf á aðstofna flokk fólksins!!!

Málið er einfalt:
Allir eiga rétt á óskertum ellistyrk. - Allt annað er hreinn þjófnaður!!!
Ef fólk nær einhverju af því sem tíndist undir þvingaðri svokallaðri lífeyrisinnborgun, er það hrein vðbót.  - Viðbótin til að eiga áhyggjuminna ævikvöld með því að hafa sett 10% til hliðar, með von um að geta veitt sér smávegis umfram ellistyrkinn!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hefðir átt að skoða sögu ellistyrksins, þróun og breytingar gegnum árin áður en þú fórst að bulla þessa endemis þvælu.

Tekjur hafa ætíð skert bæturnar og fram á þessa öld allar tekjur og eignir. Styrkurinn var hugsaður sem aðstoð við eignalausa sem engar tekjur höfðu og átti að sjá til þess að enginn svelti. Fólk með tekjur átti ekki rétt á styrknum. Honum var aldrei ætlað að vera viðbót við aðrar tekjur. Hann var fyrst og fremst fátækrahjálp og náði til dæmis ekki fjórðungi af lágmarkslaunum fyrir 50 árum síðan.

Vagn (IP-tala skráð) 10.4.2018 kl. 00:23

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Í fyrsta lagi er þetta rangt hjá þér Vagn og í öðru lagi væri slík tilhögun heiftarleg hugsanaskekkja.

Ellilífeyrir frá ríkinu (ekki ellistyrkur, það er rangnefni) var til þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, undir lok sjöunda áratugarins. Við stofnun þeirra var skýrt talað um að ellilífeyrir frá ríkinu ættu aldrei að skerða greiðslur frá þessum sjóðum, þetta væri viðbót sem vinnandi og harðduglegt fólk gæti átt er það hætti störfum.

Út frá þessum punkti var ákveðið að lögbinda hluta launa til greiðslu í þessa sjóði, var í upphafi 6% af öllum launum, er nú um 13,5% og stefnir í 15% af öllum launum fólks. Það er nokkuð ríflegri skattur sem launafólk borgar þá til lífeyrissjóða en til þess sveitarfélags sem það býr í og þiggur alla þjónustu frá!

Hugsanaskekkjan liggur svo aftur í því að ef ellilífeyrir frá ríkinu á að skerða áunninnar greiðslur úr lífeyrissjóði, er ljóst að enginn með laun undir tæpum 400.000kr á mánuði, fær nokkurn tímann eina krónu af þeim greiðslum sem af honum voru teknar til lífeyrissjóða.

Það er aumt þjóðfélag sem getur ekki unnt því fólki sem í svita síns andlits byggði upp landið okkar og kom því úr örbyrgð til álna, sómasamlegu ævikvöldi! Það er aumt þjóðfélag sem ekki getur unnt þeim sem af dugnaði og elju hefur greitt hluta launa sinna til lífeyrissjóðs, að njóta þess sparnaðar.

Gunnar Heiðarsson, 10.4.2018 kl. 08:19

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Smá leiðrétting: Ellilífeyrir frá ríkinu var þegar til ...

Gunnar Heiðarsson, 10.4.2018 kl. 08:20

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ellilífeyrir TR er í raun ennþá aðeins fátækrahjálp.  Jafnvel þótt óskertur sé.  Þó er þiggjendum hans gert að greiða af hungurlúsinni skatta!

Kolbrún Hilmars, 10.4.2018 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband